Mennta - og menningarmál

Barnamenningarsjóður og nýr sjóður fyrir barna- og ungmennabækur

Share on facebook
Share on twitter

Barnamenningarsjóður Íslands var stofnaður í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins en hlutverk hans er að styðja við fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna og ungmenna. Í starfi hans er m.a. horft til áherslu menningarstefnu um samstarf stofnana, skóla, félagasamtaka og einstaklinga og jafnt aðgengi barna og ungmenna að fjölbreyttum og vönduðum listviðburðum óháð búsetu og efnahag. Verkefni sem stuðla að lýðræðislegri virkni barna í samfélaginu eða taka að öðru leyti mið af inntaki Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hafa sérstakt vægi. Listamenn, stofnanir, félagasamtök og aðrir lögaðilar sem sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sótt um í sjóðinn. Nú er einnig í fyrsta sinn auglýst eftir umsóknum um styrki í nýjan sjóð til útgáfu barna- og ungmennabóka. Markmið með þeim sjóði er að auðga og efla útgáfu vandaðra bóka, sem skrifaðar eru á íslensku, fyrir yngri lesendur. Skort hefur á fjölbreytt úrval barna- og ungmennabóka á íslensku og er nýi sjóðurinn viðbragð við því sem og innlegg í þá vitundarvakningu sem nú á sér stað um mikilvægi læsis og málefni íslenskrar tungu.

Annar árangur á sama sviði

Bætt aðgengi framhaldsskólanema að geðheilbrigðisþjónustu

3 milljarða kr. aukning til háskóla- og rannsóknastarfsemi

Menntanet sett á fót á Suðurnesjum

Frítekjumark námsmanna fimmfaldað: Menntasjóður námsmanna kemur til móts við samfélagið

600 mánaðarlaun til viðbótar til listamanna

Nýtt lánasjóðskerfi samþykkt á Alþingi: Menntasjóður námsmanna tekur við af LÍN

127 milljarða sókn í mennta- og menningarmálum

3.000 sumarstörf fyrir námsmenn

Samtökin Móðurmál styðja nemendur af erlendum uppruna