Mennta - og menningarmál

Afborganir námslána lækkaðar

Share on facebook
Share on twitter

Tekjutengd afborgun námslána lækka þegar bæði vextir og endurgreiðsluhlutfall á eldri námslánum LÍN lækka. Ábyrgðarmenn á um 30.000 lánum verða felldir brott til að tryggja jafnræði og uppgreiðsluafsláttur hækkaður upp í allt að 15%.  

Aðgerðirnar sem ríkisstjórnin ræðst í eru eftirfarandi: 

  • Vextir námslána lækka úr 1% niður í 0,4%. 
  • Endurgreiðsluhlutfall lána lækkar til samræmis sem lækkar afborganir. 
  • Afsláttur vegna uppgreiðslu námslána verður allt að 15% framvegis. 
  • Ábyrgðarmenn á lánum í skilum sem tekin voru fyrir 2009 falla brott og jafnræði þannig tryggt. 

Starfshópur forsætisráðherra um endurgreiðslur námslána mat núvirtan kostnað aðgerðanna um 14 milljarða króna. Hann fellur til yfir lengri tíma og unnt er að láta greiðendur námslána njóta góðs af sterkri fjárhagsstöðu Lánasjóðsins sem fjármagnar aðgerðirnar. 

Forsætisráðherra skipaði starfshópinn í kjölfar samráðsfunda stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins í tengslum við gerð kjarasamninga þar sem m.a. var rætt um menntamál og hag launþega að námi loknu. Aðilar vinnumarkaðarins bentu á að lántakar greiddu um 4% af launum sínum í afborganir af námslánum á ári eða sem samsvaraði u.þ.b. einum útborguðum mánaðarlaunum á ári. Þessi byrði hefur reynst þung fyrir ungt fólk sem er að koma sér þaki yfir höfuðið og hasla sér völl á vinnumarkaði. 

Annar árangur á sama sviði

Bætt aðgengi framhaldsskólanema að geðheilbrigðisþjónustu

3 milljarða kr. aukning til háskóla- og rannsóknastarfsemi

Menntanet sett á fót á Suðurnesjum

Frítekjumark námsmanna fimmfaldað: Menntasjóður námsmanna kemur til móts við samfélagið

600 mánaðarlaun til viðbótar til listamanna

Nýtt lánasjóðskerfi samþykkt á Alþingi: Menntasjóður námsmanna tekur við af LÍN

127 milljarða sókn í mennta- og menningarmálum

3.000 sumarstörf fyrir námsmenn

Samtökin Móðurmál styðja nemendur af erlendum uppruna