Velferðarmál

Heilbrigðismál

Samið um þjónustu Ljóssins

Share on facebook
Share on twitter

Sjúkratryggingar Íslands hafa gert þjónustusamning við Ljósið um endurhæfingarþjónustu við fólk sem greinst hefur með krabbamein. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur staðfest samninginn sem tók gildi 1. janúar síðastliðinn og gildir til ársloka 2023. Alls eru 220 milljónir króna tryggðar rekstri Ljóssins í fjárlögum þessa árs.

Ljósið var formlega stofnað í janúar árið 2006. Markmið þess frá upphafi hefur verið að sinna endurhæfingu og veita stuðning þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Ljósið er viðurkennd heilbrigðisstofnun samkvæmt skilgreiningu laga og heyrir undir eftirlit Embættis landlæknis. Þjónusta Ljóssins er þverfagleg og einstaklingsmiðuð og felst m.a. í iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, sálfræðiþjónustu, næringarráðgjöf og félagslegri virkni.

Annar árangur á sama sviði

Aðgerðaáætlun um endurhæfingu til fimm ára

​Stórfjölgun hjúkrunarrýma á næsta ári

Samningur um stóraukna heimahjúkrun í Reykjavík

Samningur um byggingu 64 rýma hjúkrunarheimilis við Boðaþing í Kópavogi.

Hjúkrunardeild fyrir heimilislaust fólk sett á fót árið 2021.

Styrkur fyrir sérnám ráðgjafa á sviði heilabilunar.

Bætt aðgengi framhaldsskólanema að geðheilbrigðisþjónustu

Nýtt hjúkrunarheimili fyrir 60 íbúa á Akureyri

Breyttar reglur um greiðslur fyrir þjónustu sjúkraþjálfara