Ríkisstjórnin skipaði átakshóp um úrbætur í innviðum í kjölfar fárviðrisins sem gekk yfir í desember 2019. Hópurinn leitaði til sveitarfélaga, innviðafyrirtækja og stofnana til að fá sýn þeirra um nauðsynlegar úrbætur í innviðum og hefur skilað heildstæðri aðgerðaáætlunar vegna uppbyggingar innviða fram til 2030. Samkvæmt mati hópsins mun heildarfjárhæð framkvæmda hins opinbera og innviðafyrirtækja í uppbyggingu innviða nema 900 milljörðum króna á næstu tíu árum. Helstu aðgerðir eru:
Jarðstrengjavæðingu dreifikerfis raforku verði flýtt þannig að árið 2025 verði henni lokið að langmestu leyti í stað ársins 2035.
Tillögur til einföldunar og aukinnar skilvirkni í leyfisveitingum vegna framkvæmda í flutningskerfi raforku.
Framkvæmdum í svæðisflutningskerfi raforku, sem ekki eru á 10 ára kerfisáætlun Landsnets, verði flýtt.
Trygging á framboði varma á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu, í nafni almannahagsmuna og orkuöryggis, með könnun á varmastöð í Krýsuvík.
Grunnnet fjarskipta verði byggt upp með hliðsjón af aðgengi og öryggi og tengingu Íslands við umheiminn
Öryggi verði haft í fyrirrúmi við allar ákvarðanir í samgöngumálum.
Uppbyggingu ofanflóðavarna verði lokið árið 2030.
Efling almannavarnakerfisins og heildstæð vöktun náttúruvár.
Varaafl fyrir raforku og fjarskipti endurskilgreint og eflt.
Samræmd stefnumótun í málefnum innviða og áætlunum ríkisins.