SAFT – samfélag, fjölskylda og tækni er mikilvægt vakningarátak um örugga tækninotkun barna og unglinga á Íslandi. Samningur er við ríkisstjórnina um stuðning við starfsemi verkefnisins til ársloka 2020 og fór undirritunin fram í Klettaskóla í Reykjavík. Klettaskóli er sérskóli á grunnskólastigi sem starfað hefur frá árinu 2011.
Að samningnum standa félagsmálaráðuneyti, mennta- og menningarmálaráðuneyti og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti annars vegar og hins vegar landssamtök foreldra Heimili og skóli, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjóri og Barnaheill – Save the Children á Íslandi. Verkefnið er hluti af netöryggisþætti samgönguáætlunar Evrópusambandsins.
Samningurinn sem undirritaður var snýr að rekstri SAFT-verkefnisins á Íslandi en vitundarvakning þess um örugga og jákvæða notkun netsins og annarra nýmiðla snýr ekki aðeins að börnum og ungmennum heldur einnig foreldrum, kennurum, fjölmiðlum og þeim sem starfa við upplýsingatækni.
Nánar má fræðast um SAFT og mikilvægi netöryggismála á heimasíðunni www.saft.is.