Dómsmála- og heilbrigðisráðherra hafa samþykkt aðgerðaráætlun um aðgerðir í heilbrigðismálum í fangelsum og úrræðum vegna vímuefnavanda fanga.
Aðgerðaráætlunin felur í sér viðamiklar breytingar er lúta að heilbrigðisþjónustu fanga og úrræðum vegna vímuefnavanda í fangelsum landsins. Afar mikilvægt er að tryggja eftirfylgni með þeim aðgerðum sem hópurinn leggur til. Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að endurskipa í starfshópinn og veita honum umboð til að starfa áfram til að styðja við og fylgja eftir innleiðingu aðgerðaráætlunarinnar og gera tillögur til breytinga ef þörf krefur. Unnið verður að því innan beggja ráðuneyta að tryggja fjármagn í samræmi við lög um opinber fjármál.
Aðgerðaráætlunin felur í sér þrjár meginaðgerðir, þ.e. eflingu heilbrigðisþjónustu, skilgreiningu verklags og ábyrgðar í innri starfsemi fangelsanna vegna breytinga á heilbrigðisþjónustu og þarfagreiningu og aðgerðaráætlun til að sporna við dreifingu og neyslu vímugjafa á Litla Hrauni.