Miðstöðin mun einnig hafa það hlutverk að vera stjórnvöldum til ráðgjafar og leggja fram tillögur að mótun stefnu og aðgerða í þessum efnum og fylgja þeim eftir. Rekstur miðstöðvarinnar verður í höndum Barnaverndarstofu sem fær aukna fjármuni til þess að geta haldið utan um upplýsingar, rannsóknir, tölfræði og fleira er varðar ofbeldi gegn börnum auk ráðgjafar og tillögugerðar varðandi stefnumótun og aðgerðir. Stjórnvöld á hverjum tíma munu hafa aðgengi að þessum upplýsingum og faglegri ráðgjöf við stefnumótun í málaflokknum, meðal annars með hliðsjón af vinnu við svokallað mælaborð um velferð barna.