Umhverfismál

Stefnt að friðlýsingu jarðarinnar Dynjandi

Share on facebook
Share on twitter

Innan marka jarðarinnar er náttúruvættið Dynjandi ásamt vatnasviði fossanna í Dynjandisá. Dynjandi er meðal hæstu fossa landsins, nær 100 metra hár, og af mörgum talinn ein af fegurstu náttúruperlum Íslands. Hann er einn helsti viðkomustaður ferðamanna á Vestfjörðum. Svæðið við Dynjanda er að mestu ósnortið og einkennist af áhrifum jökla sem hafa sorfið landið og skilið eftir sig einstaklega mikinn fjölda vatna og tjarna á Dynjandisheiði.

Markmið samkomulags milli RARIK og ríkisins sem gert var í september 2019 er að tryggja útivistar- og náttúruverndargildi jarðarinnar og náttúruvættisins Dynjanda. Dynjandi og aðrir fossar í Dynjandisá ásamt umhverfi þeirra voru friðlýst sem náttúruvætti árið 1981 en af hálfu stjórnvalda er nú stefnt að friðlýsingu allrar jarðarinnar.

Annar árangur á sama sviði

Áform um friðlýsingu Borgarvogs í Borgarbyggð

Bann við afhendingu plastburðarpoka tekur gildi

Ráðist í uppbyggingu innviða á nýfriðlýstum svæðum

Ný gestastofa og starfsstöð náttúruverndarsvæða í Mývatnssveit

24 aðgerðir í átt að hringrásarhagkerfi

Styrkir til fráveituframkvæmda sveitarfélaga

Frumvarp um Hálendisþjóðgarð lagt fram á Alþingi.

Ný metnaðarfull markmið í loftslagsmálum

3 milljarða króna aukning til loftslagsmála