Umhverfismál

Ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum – Ísland uppfyllir skuldbindingar og gott betur

Share on facebook
Share on twitter

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra kynntu aðra útgáfu aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum í lok júní 2020.

  • Með aðgerðunum nær Ísland 35% samdrætti fram til ársins 2030 – alþjóðlegar skuldbindingar nema 29% samdrætti
  • Gróft mat sýnir að aðgerðir í mótun geta skilað 5-11% samdrætti til viðbótar, eða samtals 40-46%
  • Dregið úr losun um ríflega milljón tonn CO2-ígilda
  • 48 aðgerðir, þar af 15 nýjar

Með aðgerðunum er áætlað að losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands muni hafa dregist saman um ríflega eina milljón tonna CO2-ígilda árið 2030 miðað við losun ársins 2005. Þetta þýðir að Ísland nær alþjóðlegum skuldbindingum sínum í loftslagsmálum um 29% samdrátt og gott betur, eða 35%. Til viðbótar eru aðgerðir sem eru í mótun taldar geta skilað 5-11%, eða samtals 40-46% samdrætti.

Annar árangur á sama sviði

Áform um friðlýsingu Borgarvogs í Borgarbyggð

Bann við afhendingu plastburðarpoka tekur gildi

Ráðist í uppbyggingu innviða á nýfriðlýstum svæðum

Ný gestastofa og starfsstöð náttúruverndarsvæða í Mývatnssveit

24 aðgerðir í átt að hringrásarhagkerfi

Styrkir til fráveituframkvæmda sveitarfélaga

Frumvarp um Hálendisþjóðgarð lagt fram á Alþingi.

Ný metnaðarfull markmið í loftslagsmálum

3 milljarða króna aukning til loftslagsmála