Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fengið 15 milljóna króna styrk sem ætlað er að hjálpa embættinu að sinna auknum forvörnum og stuðningi við börn í viðkvæmri stöðu til að draga úr líkum á ofbeldisbrotum þeirra. Styrkurinn er liður í vinnu aðgerðateymis skipuðu af Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og barnamálaráðherra, og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, í þeim tilgangi að stýra og samræma vinnu við útfærslu aðgerða gegn ofbeldi á tímum efnahagsþrenginga og áfalla.
Verkefnið er þrískipt:
- Rannsaka brot ósakhæfra barna og ungmenna í samræmi við fyrirmæli ríkissaksóknara 9/2009.
- Að efla samstarf við aðrar stofnanir um forvarnir gegn afbrotum þ.m.t. heilsugæslu,grunn- og framhaldsskóla, tómstunda- og íþróttastarf sveitarfélaga, félagsþjónustu og barnavernd.
- Almenn vitundarvakning um þróun ofbeldis og ofbeldismenningu meðal íslenskra ungmenna í samstarfi við hagaðila og ungmennin sjálf m.a. með því að vinna með Hinu húsinu og hópnum Ungmenni gegn ofbeldi.