Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, og Eva Björk Harðardóttir, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, hafa skrifað undir samning á Selfossi um greiningu tækifæra og áhrifa friðlýstra svæða á Suðurlandi. Verkefnið er ein aðgerða í Byggðaáætlun 2018-2024 en er einnig hluti af stefnu ríkisstjórnarinnar um sérstakt átak í friðlýsingum.