Með friðun tryggjum við rétt okkar og komandi kynslóða til að njóta ósnortinnar náttúru. Ósnortin náttúra er takmörkuð auðlind, auðlind sem á heimsvísu fer þverrandi. Reglur um friðlýst svæði eru mismunandi og fara eftir markmiðum friðlýsingar, eðli svæðisins og samkomulagi við hagsmunaaðila.
Friðlýst svæði á Íslandi eru 114 talsins og má finna upplýsingar um þau á linknum hér fyrir neðan!