Umhverfismál

Bann við notkun svartolíu í landhelgi Íslands

Share on facebook
Share on twitter

Þann 1. janúar 2020 tóku hertar kröfur varðandi eldsneyti gildi í íslenskri landhelgi, sem í raun bannar notkun svartolíu innan hennar. Bannið er meðal annars liður í að framfylgja aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum, sem og stjórnarsáttmála. Með útgáfu reglugerðar varð Ísland með einar ströngustu kröfur í heimi hvað varðar notkun svartolíu sambærilegar svokölluðum ECA-svæðum í Eystrasalti og Norðursjó.

Auk tilætlaðs ávinnings fyrir loftslagið er breytingunni ætlað að stuðla að betri loftgæðum við strendur Íslands og hvetja til notkunar á loftslagsvænni orkugjöfum á skipum. Breytingarnar eru í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands samkvæmt viðauka VI í MARPOL-samningnum sem Ísland fullgilti í febrúar 2018.

Annar árangur á sama sviði

Áform um friðlýsingu Borgarvogs í Borgarbyggð

Bann við afhendingu plastburðarpoka tekur gildi

Ráðist í uppbyggingu innviða á nýfriðlýstum svæðum

Ný gestastofa og starfsstöð náttúruverndarsvæða í Mývatnssveit

24 aðgerðir í átt að hringrásarhagkerfi

Styrkir til fráveituframkvæmda sveitarfélaga

Frumvarp um Hálendisþjóðgarð lagt fram á Alþingi.

Ný metnaðarfull markmið í loftslagsmálum

3 milljarða króna aukning til loftslagsmála