Vísinda- og tækniráð hefur samþykkt að 150 milljónir króna fari í rannsóknir á loftslagsbreytingum næst þegar auglýst verður eftir umsóknum um styrki í svokallaða markáætlun.
Skilgreindar hafa verið
samfélagslegar áskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir á næstu árum í víðu
samráði við almenning og hagsmunaaðila. Niðurstaðan var að umhverfismál væru ein
af þeim. Markmiðið var að marka áherslur Íslands fyrir þverfaglegt samstarf um
rannsóknir og nýsköpun á komandi árum.
Rannsóknir vegna loftslagsbreytinga munu aukast við þetta.