Borgarlína sett af stað
Raunhæf áætlun um samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu með áherslu á breyttar ferðavenjur og loftslagsmarkmið
Stórátak í samgöngumálum
Átak í að fækka einbreiðum brúm
36 einbreiðar brýr í dag en verða 22 árið 2024
Átak í malbikun tengivega
140 kílómetrar malbikaðir á kjörtímabilinu
Tæplega 9000 ársverk
fara í að framkvæma verkefnin í núgildandi samgönguáætlun.
Þar af eru um 2000 ársverk í hönnun og undirbúningi
- Má þar nefna stórframkvæmdir á suðvestur horninu sem þegar er ýmist lokið eða eru í byggingu eins ogtvöföldun Reykjanesbrautar gegnum Hafnarfjörð, tvöföldun vegar gegnum hluta Mosfellsbæjar og á Kjalarnesi og byggingu nýs vegar með aðskildum aksturstefnum milli Hveragerðis og Selfoss.
- Á Vestfjörðum er gerð Hrafnseyrarganga lokið og uppbygging vegar um Dynjandisheiði hafin, þverun Þorskafjarðar og framkvæmdir á Barðaströnd í gangi.
- Á norðan-og austanverðu landinu eru stækkun flugstöðvar og flughlaðs á Akureyri og aksturbraut og -stæði við Egilstaðaflugvöll meðal stærstu framkvæmda, lok framkvæmda við Dettifossveg og endurbygging vegar á Langanesströnd, undirbúningur undir Fjarðarheiðargöng og gerð heilsársvegar um Öxi og nýs vegar um Hornafjarðarfljót sem samstarfsverkefni á áætlun.